Á stjórnarfundi í dag lætur Níels Árni Lund af störfum sem stjórnarformaður Héraðsskóga.  Nýr stjórnarformaður er Þorvaldur Jóhannesson. 

Níels Árni hefur verið stjórnarformaður í á 10. ár og er honum þakkað gott starf fyrir verkefnið.  Níels Árni á þó eftir að tengjast okkur áfram en hann er skifstofustjóri í landbúnaðaráðuneytinu og hefum m.a. umsjón með skógræktarverkefnum.  Þorvaldur Jóhannesson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.