Vaglamenn skipuleggja hvernig koma skuli söginni inn.
Vaglamenn skipuleggja hvernig koma skuli söginni inn.

Eykur möguleika á viðarvinnslu verulega

Á næstu dögum verður tekin í notkun ný stórviðarsög í starfstöð Skógræktar ríkisins á Vöglum í Fnjóskadal. Sögin gerir kleift að nýta betur þann við sem til fellur við grisjun og skógarhögg á starfsvæði skógarvarðarins á Norðurlandi. Vaxandi áhugi er á íslensku timbri til margvíslegra nota.

Sögin nýja er af gerðinni Woodmizer LT40. Hún getur sagað allt að 90 sentímetra svera boli og allt að 8,6 metra langa. Varla mun þó reyna mjög á þessi mörk á næstunni enda lítið um svo stórvaxin tré á Íslandi enn sem komið er. Þeim trjám fjölgar þó óðum í skógum landsins sem vinna má í planka og borð sem gefur auknar tekjur fyrir skógareigandann. Á söginni nýju er vökvabúnaður sem auðveldar mjög alla vinnu við hana, meðal annars að koma bolunum upp á sögina og velta þeim á henni. Slegið er inn í tölvu vélarinnar hversu þykkt skuli saga og þá er leikur einn að saga.

Til að byrja með verður söginni komið fyrir í einu af gróðurhúsunum á Vöglum sem áður voru notuð til ræktunar meðan gróðrarstöðin var og hét. Vonast er til þess að síðar verði reist skemma yfir viðarvinnsluna á Vöglum enda horfur á því að umfang hennar aukist í takt við vöxt skóganna. Talsvert hefur nú þegar verið tekið frá af gildum bolum á Vöglum, bæði greni og fura, sem meiningin er að vinna í nýju söginni. Timbrið nýtist vel við ýmsar smíðar og viðhaldsverkefni á staðnum en verður einnig til sölu. Fyrirspurnir um timbur eru þegar farnar að berast og til dæmis hefur bóndi í nágrenninu lýst áhuga á því að láta saga fyrir sig gólfborð í útihús.

Meðfylgjandi myndir tók Rúnar Ísleifsson skógarvörður þegar sögin nýja var tekin út úr gámnum í síðustu viku og flutt inn í gróðurhús með hjálp vörubílskrana og forláta Ferguson sem þjónað hefur vel og lengi á Vöglum og gerir enn. Nú er unnið að því að setja vélina upp og stefnt að því að setja hana í gang síðar í vikunni.






Texti: Pétur Halldórsson
Myndir: Rúnar Ísleifsson