Möguleg áhrif útbreiðslu lúpínu á samfélög frjóbera á Íslandi

Ný grein er komin út í alþjóðlega vísindaritinu Icelandic Agricultural Sciences. Þetta er sjötta greinin sem kemur út í hefti 30/2017.

Greinin er á ensku og ber titilinn „Potential impact of Nootka lupine (Lupinus nootkatensis) invasion on pollinator communities in Iceland“. Á íslensku gæti titill hennar verið „Möguleg áhrif útbreiðslu lúpínu á samfélög frjóbera á Íslandi“. Athugun var gerð í Heiðmörk sumarið 2015 á svæði sem einkennist af blöndu af innlendu skóglendi, mólendi og þéttum lúpínubreiðum. Frjóberandi skordýr sem sáust voru m.a. af hunangsfluguætt, hármýsætt, svarmfluguætt, húsfluguætt, sveifflugur (randaflugur) og bjöllur.

Rannsóknin leiddi í ljós að marktækt fleiri einstaklingar af þessum sex algengustu ættum frjóberandi skordýra fundust á innlendum gróðri en í lúpínubreiðunum í Heiðmörk. Þetta er einföld athugun en höfundar álykta að lúpínan bjóði upp á verra búsvæði fyrir frjóberaandi skordýr í íslenskri náttúru en innlendu gróðurhverfin.