Sprotarnir á þessari alaskaösp eru orðnir hátt í 30 cm langir þótt rúm vika sé eftir af júnímánuði.
Sprotarnir á þessari alaskaösp eru orðnir hátt í 30 cm langir þótt rúm vika sé eftir af júnímánuði.

Umsóknarfrestur til 12. september

Grænni skógar I er skógræktarnám ætlað fróðleiksfúsum skógarbændum og áhugasömum skógræktendum sem vilja auka þekkingu sína og ná betri árangri í skógrækt. Námskeiðaröð hefst á Suður- og Vesturlandi 22. september. Kennt verður í starfstöðvum Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi (Garðyrkjuskólanum) og á Hvanneyri. Farið verður í vettvangsferðir i skóglendi í nágrenninu. Skráningarfrestur er til 12. september. 
  
Grænni skógar I er alls 16 námskeið (2-3 námskeið á önn). Námskeiðaröðin stendur yfir í þrjú ár (6 annir). Námið er metið til eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðaröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskólanum. Slík einingagjöf er háð því að nemendur hafi sótt 80% skyldunámskeiðanna og staðist námsmat.

Hvert námskeið tekur tvo daga og er kennt frá kl. 16:00 til 19:00 á föstudegi og frá kl. 09:00 til 16:00 á laugardegi. Námskeiðin byggjast upp á fræðsluerindum sem sérfræðingar á hverju sviði flytja. Reynt verður að fara í vettvangsferð í lok hvers námskeiðs og fá þannig meiri og betri tilfinningu fyrir því sem verið er að fjalla um hverju sinni. Einnig er verkleg kennsla á nokkrum námskeiðanna. Landbúnaðarháskóli Íslands sér um framkvæmd námsins en þeir aðilar sem koma að náminu auk skólans eru: Félög skógarbænda í viðkomandi landsfjórðungi, Skógræktin og Landgræðsla ríkisins.

Á námskeiðunum er fjallað um mörg af grunnatriðum skógræktar, m.a. val á trjátegundum, skógarhönnun og landnýtingaráætlanir, undirbúning lands fyrir skógrækt, framleiðslu og gróðursetningu skógarplantna, skógarumhirðu, skógarnytjar, sjúkdóma og skaða í skógi, skjólbelti, skógarhöggstækni og verndun fornminja og náttúru í skógrækt svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur vikuferð til útlanda verið hluti af náminu þar sem þátttakendur kynnast því helsta sem nágrannaþjóðir okkar eru að gera í skógrækt.

Námskeiðaröð Grænni skóga I á Suður- og Vesturlandi hefst 22. september kl. 15:30.

Kennt verður í starfstöðvum Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi (Garðyrkjuskólanum) og á Hvanneyri. Farið í vettvangsferðir i skóglendi í nágrenninu.

Nánari uppl. hjá verkefnisstjóra Grænni skóga, Björgvini Eggertssyni bjorgvin@lbhi.is s. 843 5305

Þátttökugjald er 49.000kr á önn (tvær annir á ári og samtals 6 annir). Innifalið er kennsla, kaffi, hádegismatur og námsgögn á rafrænu formi.

Hægt er að sækja um styrki fyrir námskeiðum hjá starfsmenntasjóðum, eins og t.d. starfsmenntsjóði bænda (www.bondi.is). 

Skráningarfrestur er til 12. september. 

Hámarksfjöldi þátttakenda er 30.

Eina leiðin til að tryggja sér öruggt pláss er að skrá sig sem fyrst.