Á námskeiðinu verður meðal annars farið ítarlega yfir helstu kvilla í trjám, varnarviðbrögð trjánna …
Á námskeiðinu verður meðal annars farið ítarlega yfir helstu kvilla í trjám, varnarviðbrögð trjánna og heilbrigði. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Aaron Shearer, skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni, leiðbeinir á námskeiði um áhættumat trjáa sem haldið verður í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi 21. september. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs.

Með hlýnandi veðri og hækkandi trjágróðri í þéttbýli er orðið mikilvægt að geta lagt mat á ástand trjáa og möguleg hættumerki.

Námskeiðið hefst á bóklegri yfirferð þar sem farið verður ítarlega yfir helstu kvilla í trjám, varnarviðbrögð þeirra og heilbrigði. Einnig verður fjallað um hvernig meta má möglega hættu sem stafar af trjám með það fyrir augum að koma í veg fyrir skaða á fólki eða eignum. Varnarviðbrögð trjáa verða skoðuð og hvernig trén bregðast við áreiti, skaða og klippingum.

Seinni hluti námskeiðsins er verklegur þar sem tré verða skoðuð með tilliti til áhættumats. Nemendur læra að nota mismunandi matsaðferðir, muninn á ítarlegu áhættumati og sjónrænu mati á ástandi trjáa auk þess að skipuleggja inngrip í takt við niðurstöður matsins.

Þetta dagsnámskeið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs. Námskeiðið fer fram á ensku, túlkað eftir þörfum.

  • Kennsla: Aaron Shearer, skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni (MArborA MSc)
  • Tími: 21. september, kl. 9-15 hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum, Ölfusi
  • Verð: 34.000 kr. (Kaffi, hádegismatur og námsefni innifalið í verði)
  • Skráning: gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningu lýkur 14. september