Heilbrigða skóga fyrir heilbrigt fólk. Skjámynd úr myndbandi FAO
Heilbrigða skóga fyrir heilbrigt fólk. Skjámynd úr myndbandi FAO

„Heilbrigða skóga fyrir heilbrigt fólk“ er yfirskrift alþjóðlegs dags skóga að þessu sinni. Dagurinn er 21. mars ár hvert og myndbandið sem skógasvið FAO gefur út í tilefni dagsins kemur nú í fyrsta sinn út á íslensku.

Bent er á í myndbandinu að vernd og sjálfbær nýting skóga sé ein besta leiðin til verndar jörðinni og okkur sjálfum. Heilbrigðir skógar skipti sköpum fyrir heilbrigði jarðarinnar, hvernig sem á er litið, allt frá lífsviðurværi og næringu upp í líffjölbreytni og umhverfið. En að skógunum steðjar ógn. Tíu milljónum hektara skóga var eytt á hverju ári í heiminum á árunum 2015 til 2020. Skordýraplágur skaða um 35 milljónir hektara skóga árlega. Árið 2015 spilltu gróðureldar um það bil 98 milljónum hektara skóga í heiminum. Það er undir okkur sjálfum komið að halda hlífiskildi yfir þessum dýrmætu náttúruauðlindum. Að vernda skóga, breiða þá út og stuðla að heilbrigði skóganna er líka okkur sjálfum fyrir bestu þegar upp er staðið. Við þurfum heilbrigða skóga fyrir heilbrigt fólk.

Skógræktin hefur frá árinu 2014 gefið út myndband í tilefni af alþjóðlegum degi skóga. Að þessu sinni er myndbandið íslensk útgáfa af myndbandi skógasviðs FAO, matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem nú kemur út á allnokkrum tungumálum og jafnframt er unnið að því að hægt verði að velja skjátexta við myndbandið á 40 tungumálum, þar á meðal íslensku. 

Á vef alþjóðlegs dags skóga má finna upplýsingar um ýmsa viðburði í tilefni dagsins, meðal annars málþing og fræðslu um yfirskrift dagsins sem öllum er aðgengileg.

#GlobalGoals #Agenda2030 #SDGs #IntlForestDay #SDGs #Agenda2030 #GlobalGoals

Texti: Pétur Halldórsson