Skógarganga með jós í myrkrinu að kvöldi kosningadags, hvernig sem úrslitin kunna að fara í fólk.
Skógarganga með jós í myrkrinu að kvöldi kosningadags, hvernig sem úrslitin kunna að fara í fólk.

Skógræktarfélag Borgarfjarðar býður til göngu í Reykholti

Skógræktarfélag Borgarfjarðar boðar til ljósagöngu um skógarstíga í Reykholti á laugardag, 28. október, kl. 18. Gangan hefst við Höskuldargerði. Þátttakendur mættu gjarnan hafa með sér luktir, kerti eða annað ljós til að glöggva sig á aðstæðum og lýsa upp forvitnilega grósku á leiðinni. Auk þess munu heimamenn, sr. Geir Waage og Óskar Guðmundsson í Véum, gera tilraun til að bregða birtu yfir óljós atriði í myrkviðum skógarins.

Fyrir sumum mun þetta kannski verða eina ljósglætan þennan dag – kjördag, segir á Facebook-síðu félagsins.

Að lyktum verður kveiktur varðeldur og boðið upp á ljúffenga skógarsnúða og ketilkaffi. Miðað er við að fólk komist heim fyrir kosningavöku í sjónvarpinu.