Þar er mest af birkifræi á landinu þetta árið

Landsátakið Söfnum og sáum birkifræi efnir til birkifrætínslu og -sáningar í Vesturbyggð laugardaginn 18. nóvember og er fólk á öllum aldri hvatt til að vera með. Fræðsla verður í boði á Bíldudal kl. 11, á Tálknafirði kl. 13 og loks kl. 15 á Patreksfirði. Vesturbyggð er nánast eina svæðið á landinu þar sem teljandi magn þroskaðist af birkifræi þetta árið.

Sem kunnugt er stendur yfir áratugur Sameinuðu þjóðanna um verndun og endurheimt vistkerfa um allan heim í þágu fólks og náttúru. Íslensk stjórnvöld hafa tekið svonefndri Bonn-áskorun sem er alþjóðlegt átak um endurheimt skóga undir hatti alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna IUCN í samstarfi við fleiri aðila. Markmið Íslands í þessari áskorun er að árið 2030 vaxi birkiskógar á 5% landsins í stað 1,5% nú.

SÖFNUM OG SÁUM BIRKIFRÆISpennandi er fyrir fólk á öllum aldri að tína birkifræ og ekki síður að sá því þar sem vilji er til að koma upp birkiskóglendi. Ljósmynd: Kristinn H. Þorsteinsson
kallar eftir fræi

Misjafnt er frá ári til árs hversu mikið af birkifræi þroskast á trjánum. Í ár er almennt lítið af birkifræi í flestum landshlutum að undanskilinni Vesturbyggð en þar má víða finna mikið magn fræja.

Nú fer fræsöfnunartímanum senn að ljúka og verður gert sérstakt átak til að safna birkifræi í Vesturbyggð áður en vetur gengur í garð af fullum þunga. Eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að taka þátt í átakinu.

Laugardaginn 18. nóvember fer fram fræðsla um söfnun fræja og sáningu á þremur stöðum í Vesturbyggð.

  • Kl. 11 ætla Bílddælingar og nærsveitungar að koma saman á útsýnispallinum á varnargarðinum til að njóta fræðslu og tína fræ
  • Kl. 13 hefst dagskráin í Tálknafirði
  • Kl. 15 hefst dagskráin á Patreksfirði

Allir geta safnað fræi
og verið frægjafar

Landsátakið gefur almenningi færi á að leggja sitt af mörkum til landbótastarfs og stuðlar þannig að auknum skilningi á mikilvægi landbótastarfs í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Verkefnið SÖFNUM OG SÁUM BIRKIFRÆI hentar flestum aldurshópum vel og sérstaklega skynja börnin vel mikilvægi verkefnisins. Þau eru fljót að tileinka sér vinnubrögðin, vinna hratt og hafa gaman af. Það er því mikilvægt að að gefa börnum tækifæri til að koma og vera þátttakendur í þessu mikilvæga verkefni. Öllu fræi sem safnast verður sáð í Vesturbyggð af skólabörnum, félagasamtökum sem og öðrum sem vilja vera með.

Átakið í Vesturbyggð er samstarfsverkefni landsátaksins SÖFNUM OG SÁUM BIRKIFRÆI, Vesturbyggðar, skógræktarfélaganna, kirkjunnar í Vesturbyggð og fræðslusviðs Biskupsstofu.