Grisjunarnámskeið á Hallormsstað
(Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)
Grisjunarnámskeið á Hallormsstað
(Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

Námskeiðin eru öllum opin. Þau hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 12.

Námskeiðin eru bæði bókleg og verkleg. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa, líkamsbeitingu og leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðin. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinum.

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög á Suðurlandi

Kennarar

: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ og Böðvar Guðmundsson skógtæknir hjá Suðurlandsskógum.

Tími: Þri. 28. sept. kl. 9:00-17:30, mið. 29. sept. kl. 9:00-17:30 og fim. 30. sept.. 9:00-16:00 (3x) á Reykjum, Ölfusi (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur er til 24. september.

Verð: 40.000 kr. (Kaffi fyrir- og eftir hádegi, hádegismatur og gögn innifalin í verði).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 9.000 kr. (óafturkræft) á reikning 0354-26-4237, kt. 411204-3590.

Trjáfellingar og grisjun með keðjusög á Hallormsstað

Kennari:

Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ.

Tími: Þri. 12. okt. kl. 9:00-17:30, mið. 13. okt. kl. 9:00-17:30 og fim. 14. okt.. 9:00-16:00 (3x) á Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur er til 7. október.

Verð: 38.000 kr. (gögn innifalin í verði).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 9.000 kr. (óafturkræft) á reikning 0354-26-4237, kt. 411204-3590.



Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir