Nýverið kom tilkynning frá Reykjavíkurborg um að gömlum jólatrjám í borginni yrði ekki safnað á þeirra vegum þetta árið.  Borgin hefur venjulega sinnt þessu eftir áramót en gerir það ekki að þessu sinni. Þar sem gömlu jólatrén fara fremur illa í fjölskyldubílnum er þörf á nýjum lausnum. Til að leysa þetta mál ætla Gámaþjónustan hf og Skógræktarfélag Reykjavíkur að taka höndum saman um söfnun jólatrjáa á Reykjavíkursvæðinu. Trén eru sótt heim til þeirra sem þess óska fyrir 800 kr. Fyrir hvert jólatré sem Gámaþjónustan safnar, gróðursetur Skógræktarfélag Reykjavíkur eitt jólatré í Heiðmörk, friðlandi höfuðborgarbúa. Þeim fjölskyldum sem nýta sér þessa lausn verður boðið að koma í Heiðmörkina í vor og taka þátt í gróðursetningu trjánna. Það er mikilvægt að skila aftur til náttúrunnar því sem frá henni er tekið. Þetta er ódýr og auðveld leið til að losa sig við gamla tréð og efla skógrækt í leiðinni. Gámaþjónustan nýtir gömlu trén í moltugerð sína en moltan er mjög kraftmikill áburður sem meðal annars nýtist við gróðursetningu trjáplatna.

Pantanir tilkynnist fyrir 10. janúar. Frekari upplýsingar eru á vefsíðu Gámaþjónustunnar hf.



Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Skógræktar ríkisins.