Einar K. Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, kynnti sér skógrækt og starfsemi Skógræktar ríkisins í heimsókn í Hallormsstaðaskógi 16. ágúst. Fór ráðherra í reiðtúr um skóginn endilangan ásamt Jóni Loftssýni skógræktarstjóra, Níelsi Árna Lund, deildarstjóra í landbúnaðarráðuneytinu og Þór Þorfinnssyni skógarverði. Áð var á fimm stöðum á leiðinni, þar sem starfsfólk Skógræktar ríkisins kynnti nokkur af helstu verkefnum stofnunarinnar. Í hádeginu var komið við á Hafursá þar sem heimafólk veitti ferðalöngum hrátt hangikjöt, fjallagrasarúgbrauð og fiskisúpu. Endað var í ketilkaffi og kleinum í neðstareit í Mörkinni. Þrátt fyrir svallt veður var enginn skortur á góða skapinu, og umræður voru góðar og gagnlegar. Skógrækt ríkisins þakkar ráðherra kærlega fyrir komuna.