Skógfræðingar beina tækjum sínum að sitkagrenitrjánum í Barmahlíð. Frá vinstri: Kristján Jónsson, Va…
Skógfræðingar beina tækjum sínum að sitkagrenitrjánum í Barmahlíð. Frá vinstri: Kristján Jónsson, Valgerður Erlingsdóttir og Rakel Jónsdóttir.

Æsispennandi kappvöxtur alaskaaspar og sitkagrenis

Hæstu tré sem vaxa á Vestfjarðakjálkanum nálgast nú tuttugu metra hæð og má búast við að þeirri hæð verði náð á næsta ári. Hníf­jafnt er nú í kapphlaupi alaskaaspar í Dýrafirði og sitkagrenis í Reykhólasveit.

Starfsfólk landshlutaverkefna í skógrækt sem nú eru hluti af hinni nýju stofnun, Skóg­ræktinni, hafa hist árlega á nokkurs konar landsmóti til að bera saman bækur sínar og kynnast nytjaskógrækt á lögbýlum í mismunandi landshlutum. Að þessu sinni var komið saman á Reykhólum 21.-22. september.

Í tengslum við landsmótið var efnt til trjá­mælinga þar sem vitað var um hæstu tré á Vestfjarðakjálkanum. Ekki er vitað betur en að nú berjist myndarleg alaskaösp við Miðbæ í Haukadal í Dýrafirði um titilinn hæsta tré Vestfjarða við ekki síður myndarlegt sitkagrenitré í hinni ástsælu Barmahlíð í Reykhólasveit. Mælingin nú sýnir að öspin hefur náð greninu og sennilega ná bæði þessi tré að rjúfa 20 metra múrinn á næsta sumri.

Grenið í Barmahlíð mældist nú 19,6 m. og hefur bætt við sig 60 cm. síðustu tvö sumur. Öspin mældist 19,7 m. og hefur hækkað um 140 cm. á tveimur sumrum. Sæmundur Þorvaldsson, skógfræðingur hjá Skógræktinni á Vest­fjörð­um, bendir þó á að hafa beri í huga að grenið eigi eftir að taka út góða sumarið 2016, ef svo má segja, en hagstætt veður nýliðins sumars hafi þegar nýst öspinni.

Hæsta tré á Íslandi er sitkagreni á Kirkjubæjarklaustri, 27,3 m.


Hröfnum líkar sérlega vel við aspir, ekki einungis til að sitja þar og krunka heldur
naga þeir gjarnan efstu greinar og toppa auk þess að taka kvisti úr þeim til
hreiðurgerðar. Hugsanlega gætu heimilishrafnarnir í Miðbæ komið í veg fyrir
að öspin þar nái nokkurn tíma 20 m. hæð enda hlunkast þeir niður í öspina
af fullkomnu kæruleysi.


Valgerður Jónsdóttir og Arnlín Óladóttir við hæsta sitkagrenitréð í Barmahlíð
sem deilir nú titlinum hæsta tré Vestfjarða með ösp í Dýrafirði.


Sitkagrenitrén í Barmahlíð vaxa vel og það hæsta mælist nú 19,6 metrar á hæð.

Texti: Pétur Halldórsson
Myndir: Sæmundur Kr. Þorvaldsson