frett_04022009(2)Í gær, þriðjudaginn 3. febrúar, átti sér stað sögulegur atburður í Hallormsstaðarskógi en þá felldi starfsfólk Skógræktar ríkisins 22 m háa alaskaösp. Um er að ræða hæsta tré sem fellt hefur verið á Íslandi.

frett_04022009(3)Tréð, sem er tæplega 40 ára gamalt, á að nota í setbekki í sauna sem er í smíðum við Rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Kjartan Kjartansson, ráðsmaður þar á bæ, hefur haft veg og vanda af gerð saunans. „Við hér á Mógilsá fengum gefins lítið bjálkahús fyrir nokkrum árum,” segir Kjartan. „Í gegnum tíðina hefur verið safnað í starfsmannasjóð hér og við höfum nýtt peningana til kaupa á ýmsu inn í húsið, t.d. saunaofni. Restina höfum við síðan smíðað úr efni úr skóginum.”

Gufubaðið er nú óðum að verða tilbúið, því von er á alaskaöspinni stóru innan skamms. Ástæðan fyrir því að ösp varð fyrir valinu þegar vantaði efni í bekki er sú að viðurinn leiðir hita illa og því bærilegt að sitja á bekkjum úr ösp. „Hugmyndin með saunanu er sú að starfsmenn geti látið hugmyndir sínar gerjast við góðan hita að loknum vinnudegi,” segir Kjartan.