Björn Traustason, fagstjóri landupplýsinga hjá Skógræktinni, leiðbeinir Katrínu Jakobsdóttur forsæti…
Björn Traustason, fagstjóri landupplýsinga hjá Skógræktinni, leiðbeinir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra við mælinguna á hæsta tré landsins. Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, hægra megin með hljóðnemann, lýsir fyrir gestum því sem gerist og Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga hjá Skógræktinni, fylgist með að baki. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Í fyrsta sinn frá því fyrir ísöld stendur nú þrjátíu metra hátt tré á Íslandi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sló máli á hæsta tré landsins í dag og reyndist það vera 30,15 metrar á hæð.

Forsætisráðherra var boðið til athafnar í skóginum á Kirkjubæjarklaustri í dag þar sem hæsta tré landsins var útnefnt tré ársins af Skógræktarfélagi Íslands. Björn Traustason, fagstjóri landupplýsinga á rannsóknasviði Skógræktarinnar, leiðbeindi Katrínu við þríhyrningsmælingu á trénu sem er sitkagreni gróðursett af fjölskyldunni á Klaustri árið 1949. Mælingu Katrínar var bætt við röð mælinga sem Björn hafði þegar gert á trénu til að fá sem nákvæmasta tölu. Niðurstaðan er sú að fyrsta tréð hefur nú náð þrjátíu metra hæð á Íslandi frá því fyrir ísöld þegar hér uxu stórvaxnar trjátegundir sem náð gátu margra tuga metra hæð.

Í ávarpi sínu við tréð á Klaustri talaði Katrín Jakobsdóttir um mikilvægi skóga og skógræktar. Hún nefndi nýsamþykkta landsáætlun um landgræðslu og skógrækt, Land og líf, og þann mikilvæga þátt sem áætlunin væri í markmiðum Íslendinga í loftslagsmálum. Þar fyrir utan ætti hún persónulega kærar minningar frá þessum stað frá því þegar hún sýndi tilvonandi manni sínum skóginn snemma í sambandi þeirra.

Fjöldi fólks, um áttatíu manns, var viðstaddur í dag á Klaustri þegar tré ársins var útnefnt, heimafólk og fulltrúar eigenda skógarins, Skógræktarinnar og Skógræktarfélags Íslands. Auk forsætisráðherra fluttu ávörp Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Hafberg Þórisson í Lambhaga sem var bakhjarl viðburðarins.

Frá athöfninni í skógarlundinum á Kirkjubæjarklaustri. Frá vinstri: Hafberg Haraldsson í Lambhaga, Fanney Lárusdóttir, fulltrúi eigenda skógarins, Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Frétt: Pétur Halldórsson