Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í grisjun á Stálpastöðum í Skorradal. Um er að ræða 3 aðskilda sitkagrenireiti samtals 5,3 ha að stærð. Nánari upplýsingar um reitina er að finna í meðfylgjandi excelskjali.  Tilboðið skal vera sundurliðað eftir reitum. Heimilt er að bjóða í útkeyrslu viðar með vagni úr reitunum.  Tilboðum í grisjun og útkeyrslu skal haldið aðskildum. Heimilt er að skila inn frávikstilboðum.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktar ríkisins Hreðavatni, 311 Borgarnes fyrir 14.ágúst 2009. Tilboð verða opnuð á sama stað 14. ágúst kl. 10.00.  Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á birgir(hjá)skogur.is eða lalli(hjá)skogur.is.

Skógrækt ríkisins áskilur sér rétt til að taka tilboðum að hluta eða í heild eða hafna öllum.