Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í grisjun og útkeyrslu í Mjóanesi á Fljótsdalshéraði. Um er að ræða tvo reiti af lerki sem eru alls 5,18 ha. 

Heimilt er að bjóða í útkeyrslu viðar með vagni úr reitunum. Tilboðum í grisjun og útkeyrslu skal haldið aðskildum á tilboðsblaði. Heimilt er að skila inn frávikstilboðum. Nánari upplýsingar um reitina er að finna hér að neðan.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktar ríkisins á Hallormsstað eða senda í tölvupósti á netfangið thor[hjá]skogur.is fyrir 2.mars 2010 kl. 10:00. Tilboð verða opnuð á sama stað 2. mars kl. 11.00.  Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á thor[hjá]skogur.is eða lalli[hjá]skogur.is.

Skógrækt ríkisins áskilur sér rétt til að taka tilboðum að hluta, í heild eða hafna öllum.


Útboðsgögn: