Tveir reitir með ösp og greni

Skógræktin fyrir hönd landeigenda óskar eftir tilboðum í grisjun og útkeyrslu í Hrosshaga Biskupstungum. Um er að ræða tvo svipaða reiti með blönduðum skógi af ösp og greni sem eru 1,4 og 1,9 hektarar að stærð (sjá mynd). Öspina á að fjarlægja að mestu en gróðursett var í raðir ösp og greni til skiptis.

Tilboðum í grisjun og útkeyrslu skal haldið aðskildum. Heimilt er að bjóða eingöngu í útkeyrslu viðarins úr reitunum. Allt verð skal vera með vsk.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktarinnar, Miðvangi 2-4, 700 Egilsstaðir eða senda tölvupóst á olof@skogur.is fyrir miðvikudaginn 19. apríl kl.11.00. Tilboð verða opnuð á sama stað og dag kl 11.30. Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á olof@skogur.is.

Skógræktin áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Gögn: