Fulltrúar starfstöðva Skógræktarinnar taka við viðurkenningum vegna Græns skrefs 2 frá Birgittu Stei…
Fulltrúar starfstöðva Skógræktarinnar taka við viðurkenningum vegna Græns skrefs 2 frá Birgittu Steingrímsdóttur frá Umhverfisstofnun sem afhenti viðurkenningarnar. Ljósmynd: Skógræktin

Allar starfstöðvar Skógræktarinnar hafa nú fengið viðurkenningu fyrir að stíga annað Græna skrefið. Stofnunin stefnir ótrauð áfram og næst þriðja skrefið vonandi á næstu misserum. Frá þessu er sagt á vefnum graenskref.is.

Í frétt grænna skrefa kemur fram að starfsfólki Skógræktarinnar sé mjög umhugað um umhverfið og þau hjá Grænu skrefunum hafi ekki síður lært af starfsfólki Skógræktarinnar en starfsfólk Skógræktarinnar af þeim þegar kemur að umhverfismálunum. Bent er á að öflug fjarfundarmenning sé hjá stofnuninni sem er dreifð um allt land og t.a.m fari ýmis námskeið og fyrirlestrar fram á Teams. Með því sparist bæði tími, fjármunir og losun.

Þá er bent á að tjaldsvæði Skógræktarinnar á Vöglum og Hallormsstað bjóði gestum upp á flokkun úrgangs. Það sé frábært framtak sem fleiri tjaldsvæði um land allt mættu taka til fyrirmyndar. Nýtni og skapandi hugsun sé áberandi hjá Skógræktinni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þar sem nafnspjöld og aðrir munir eru búnir til úr afurðum skóganna. Á Mógilsá er lífrænn úrgangur jarðgerður á staðnum eins og á fleiri starfstöðvum og kaffikorgurinn fær að fara beinustu leið út í skóg þar sem næringarefnin nýtast svo sannarlega.  

á starfsmannafundi Skógræktarinnar sem haldinn var nýverið í Reykjavík afhenti Birgitta Steingrímsdóttir frá Umhverfisstofnun fulltrúumr starfstöðva Skógræktarinnar viðurkenningar vegna Græns skrefs 2. SkógræktinSkógræktin heldur nú göngunni áfram og stefnir að því að taka þriðja Græna skrefið á komandi misserum. Í því felst að leggja enn meiri áherslu á ýmis atriði sem kveðið er á um í fyrri skrefum, meðal annars að auka enn flokkun á úrgangi og draga þar með enn úr því sem fer til urðunar.

Texti: Pétur Halldórsson