Skemmtileg frétt á vef skógarbænda

Þorvaldur Böðvarsson, skógarbóndi á Grund II í Vesturhópi notar hálfrar aldar Ferguson við skógrækt sína. Traktorinn er á tvöföldum dekkjum að aftan og með tönn að framan. Á þessu tæki eru Þorvaldi allir vegir færir við skógræktarstörfin eins og kemur fram í þessari skemmtilegu frétt Bergsveins Þórssonar, skógfræðings hjá Norðurlandsskógum sem einnig tók meðfylgjandi mynd. Fréttin er á þessa leið á vef skógarbænda:

Þegar rækta á skóg er gott að eiga góðan traktor og hann þarf hvorki að vera 200 hestöfl eða glænýr úr kassanum. Þetta veit Þorvaldur Böðvarsson, skógarbóndi á Grund II í Vesturhópi sem keyrir öllum sínum plöntum út í skógræktarsvæðið á forláta Massey Ferguson 35x, trúlega árgerð 1964. Traktorinn er á tvöföldum dekkjum að aftan sem gerir hann stöðugan og eykur flotið. Tvöföldunin nýtist vel á skógarslóðunum á vorin sem eru oft blautar og illar yfirferðar og einnig þegar þarf að hossast um móana við girðingaviðhald. Þorvaldur nýtir traktorinn líka til slóðagerðar um skógræktarlandið. Við það verk er settur tætari aftan í traktorinn og tönnin að framan á virkar vel til að leggja nýja slóða og laga þá eldri.

Skógrækt hófst á Grund II árið 2009 og árlega hefur Þorvaldur sett niður á bilinu 9.000-15.000 plöntur með aðstoð góðra manna.