Birki sem sáð var 2012 hefur sums staðar á Hekluskógasvæðinu spírað vel og jafnvel myndað breiður ei…
Birki sem sáð var 2012 hefur sums staðar á Hekluskógasvæðinu spírað vel og jafnvel myndað breiður eins og við ónefndan læk vestast í Langöldu vestan Hrauneyja.

Almenningur hvattur til að safna fræi

Þessa dagana er birkifræ orðið þroskað og auðvelt að safna því af trjám. Heklu­skógar safna birkifræi eins og undan­far­in ár og þiggja gjarnan fræ frá almenn­ingi. Endurvinnslan hf. tekur við birki­fræjum frá almenningi í móttökustöðvum Endurvinnslunnar hf. að Knarrarvogi 4, Dalvegi 28, Hraunbæ 123 og kemur þeim til Hekluskóga. Einnig má senda fræið beint til Hekluskóga í Gunnarsholti eða Austurvegi 3-5, Selfossi.

Síðustu árin hefur töluvert fræ safnast og því hefur verið sáð að vori eða að hausti. Árangur sáninganna er misjafn og fer eftir landgerðum. Sums staðar sjást stök tré vaxa upp eftir sáningar og annars staðar þéttar breiður af birki.

Í lok september skoðaði verkefnisstjóri svæði sem hann sáði birki á í apríl 2012. Svæðið er vestast í Langöldu nokkrum km vestan Hrauneyja. Þar var birki sáð í skorninga í brekkum og með ónefndum læk sem rennur norð­an við Langölduna. Í haust mátti sjá birki í þéttum breiðum á bökkum lækjarins, en aðeins stöku plöntu í skorningum í undirhlíðum Langöldunnar. Hæstu plönturnar voru komnar í 15 cm hæð en megnið af plöntunum var mun smærra en þó vel lifandi og voru smáplöntur hraustlegar eftir gott sumar.

Á meðfylgjandi myndum sem birtar voru á vef Hekluskóga  má sjá árangur sáning fjórum sumrum eftir að sáð var. Myndirnar voru teknar 27. september 2016.

September 2016:

Sáning 2012:


Texti og myndir: Hreinn Óskarsson