Villtur íslenskur birkiskógur. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Villtur íslenskur birkiskógur. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Boðað er til aðalfundar Hins íslenska náttúrufræðifélags mánudaginn 25. febrúar 2019 í stofu 132 í Öskju, húsi náttúruvísinda við Háskóla Íslands. Áður en dagskrá aðalfundar hefst verður bókin Flóra Íslands kynnt.

Bókin kom út fyrir jól og eru höfundar Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhalls­dóttir. Erindið flytja þau Þóra og Jón Baldur og hefst það kl. 17.15. Allir eru velkomnir eins og á önnur fræðsluerindi félagsins. Aðalfundarstörf hefjast að því loknu, kl. 18.15.

Dagskrá aðalfundarins er eins og henni er lýst í lögum félagsins:

  • Skýrsla formanns um störf stjórnar á liðnu starfsári
  • Skýrsla gjaldkera, endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til atkvæðagreiðslu.
  • Kosning stjórnarmanna og skoðunarmanna reikninga
  • Önnur mál

Stjórn HÍN skipa nú eftirtaldir:

  • Ester Rut Unnsteinsdóttir formaður
  • Hrefna Sigurjónsdóttir varaformaður
  • Margrét Hugadóttir ritari
  • Steinþór Níelsson gjaldkeri
  • Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir fræðslustjóri
  • Jóhann Þórsson félagsvörður
  • Bryndís Marteinsdóttir meðstjórnandi

Almennir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn sem og formaður. Kjörtímabil þriggja stjórnar­manna er nú á enda, ásamt kjörtímabili formanns, og er nú kosið um þessi embætti. Þetta eru embætti Hrefnu Sigurjónsdóttur, Bryndísar Marteinsdóttur og Margrétar Hugadóttur Auk þeirra þá hafa Steinþór og Sveinborg óskað eftir að láta af stjórnarmennsku.

Texti: Pétur Halldórsson