Mynd: Laufey B. Hannesdóttir
Mynd: Laufey B. Hannesdóttir

Stendur við Arnarholt í Stafholtstungum

Skógræktarfélag Íslands hefur útnefnt virðulegt og rótgróið evrópulerki (Larix decidua) tré ársins 2014. Tréð stendur við Arnarholt í Stafholtstungum og verður sæmt titlinum við hátíðlega athöfn sunnudaginn 14. september kl. 14.

Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, segir á vef félagsins og eru allir velkomnir.

Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega tré ársins. Útnefningunni er ætlað að beina sjónum almennings að því gróskumikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa víðs vegar á landinu.

Mynd: Laufey B. Hannesdóttir