Hjónin Karólína Inga Guðlaugsdóttir og Reinhard Reinhardsson með skógarlundinn sem þau hafa verið að…
Hjónin Karólína Inga Guðlaugsdóttir og Reinhard Reinhardsson með skógarlundinn sem þau hafa verið að rækta uppí baksýn. Mynd af vef Reykjavíkurborgar.

Útnefnd Reykvíkingar ársins fyrir vikið og fengu að opna veiðina í Elliðaánum

Hjónin Reinhard Reinhardsson og Karólína Inga Guðlaugsdóttir hafa með atorku og útsjónarsemi ræktað skóg við hús sitt í Selási í Reykjavík þar sem áður var aðeins örfoka melur. Fyrir þetta starf sitt voru þau útnefnd Reykvíkingar ársins 2016 og hlutu um leið þann heiður að opna veiðitímabilið í Elliðaám ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í gærmorgun.

Frá þessu er sagt á vef Reykjavíkurborgar. Ræktunarstarf sitt í Selásnum hafa þau hjónin unnið í góðu samstarfi við borgina. Þau keyptu parhús við Viðarás árið 2004 og fóru fljótlega að græða upp landið fyrir ofan þar sem aðeins voru naktir melarnir. Í fyrstu var ástæðan sú að í miklum rigningum vildi aur skríða til úr holtinu fyrir ofan þau ofan í nærliggjandi garða, þar á meðal í garðinn þeirra. Þau hófu því að planta trjám og binda jarðveginn með gróðri.

Ræktunarstarfið vatt upp á sig og nú hafa þau Reinhard og Karólína plantað talsverðum skógi frá Viðarásnum niður að Suðurlandsvegi og halda allstórri landspildu í fallegri rækt allt í kringum hús sitt. Þetta hafa þau gert í ágætri samvinnu við garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar sem hefur oftsinnis gefið þeim plöntur til að gróðursetja. Hjónin hafa líka verið útsjónarsöm og náð sér í afleggjara af trjám sem hefur verið fargað í Sorpu. Þá hafa þau bjargað furutrjám sem þurft hafa víkja vegna framkvæmda í nágrenninu, t.a.m. á Hólmsheiði og íNorðlingaholti.

Í Selási er nú kominn talsverður skógur með blönduðum trjám sem bæði skýlir fyrir vindi og hávaða í hverfinu. Hjónin hafa bæði lagt mikið af mörkum við ræktunarstarfið. Þau bæta við trjám á hverju ári og taka sjálfsánar trjáplöntur og færa til svo skógurinn vaxi og dafni. Áður var aðeins örfoka melur þar sem nú er blómlegt og skjólsælt skóglendi og paradís fyrir fugla eftir aðeins tólf ára ræktunarstarf. Reinhard starfar sem pípulagningarmaður og segist í samtali við vef Reykjavíkurborgar hafa mjög gott af því að fara út og anda að sér fersku lofti við skógræktarstarfið. „Maður er oft að vinna inn í þröngum rýmum og í ryki þannig að það er ekkert betra en að komast út og gera eitthvað,“ segir hann.


Hjónin nota allt sem til fellur í skóginum og lífrænan úrgang frá heimilinu til að búa til moltu fyrir skógræktina. „Það kemur allt lífrænt að notum til að búa til jarðveg. Við erum með spartunnu frá Reykjavíkurborg og erum dugleg að flokka og nota grenndarstöðvarnar þannig að litla tunnan okkar er oftast ekki nema rétt hálf þegar komið er að hirða,“ segir Karólína. Á vorin sópa þau upp sandinum sem borinn hafði verið um veturinn á botnlangann til hálkuvarna og bera í göngustíg sem liggur í skóginum. Það hefur gert það að verkum að nú sópa flestir nágrannarnir líka áður en verktakar á vegum borgarinnar koma til að þrífa.

Hjónin veiddu vel í Elliðaánum í gærmorgun ásamt  Ásgeiri Heiðari leiðsögumanni sem leiðbeindi þeim við veiðarnar. Þau fengu hvort sinn laxinn og voru það hvort tveggja maríulaxar. Lax Karólínu var sérdeilis glæsilegur, segir á vef Reykjavíkurborgar, 87 sm hængur sem vó um 14 pund. Dóttir þeirra Elísabet fékk einnig að renna fyrir fisk og fékk pattaralegan maríulax. Öll voru þau kampakát með veiðina enda í fyrsta sinn að veiða lax. Borgarstjóri renndi síðan fyrir lax í ánum og fékk tvo nýgengna smálaxa. Átta laxar voru komnir á land fyrir kl. 10. Að sögn Árna Friðleifssonar, formanns Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur haft árnar á leigu frá Reykjavíkurborg frá 1939, fer laxveiðin í Elliðaánum því einkar vel af stað þetta árið, segir loks í fréttinni á vef Reykjavíkurborgar.