Rauðblaða björk í sjónmáli

Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur flytur erindi um kynbætur á íslenska birkinu í sal Garðyrkjufélags Íslands,  Síðumúla 1 í Reykjavík, fimmtudaginn 10. apríl kl. 17. Þar segir hann frá áratuga starfi sínu og annarra að birkikynbótum.

Kynbótastarfið beinist að verulegu leyti að því að skapa yrki af íslenskri ilmbjörk með háu hlutfalli af kröftugum beinstofna og hvítstofna trjám sem klæða sig vel. Góður árangur af ræktun birkiyrkisins Emblu um árabil er smám saman að breyta viðhorfum til ræktunar birkis í skógi og þéttbýli. Annað nýtt og spennandi yrki, Kofoed, er komið á markað og í sjónmáli er hvítstofna, rauðblaða birki.

Auk áframhaldandi þróunar Emblu-yrkisins er unnið að kynbótum þar sem norrænt birki er notað til að fá breytt og bætt vaxtarlag. Nýjasta yrkið, Kofoed, er nefnt eftir fyrsta skógræktarstjóra Íslands, Agner Fransico Kofoed-Hansen, sem var frumkvöðull í verndun og nýtingu birkisins. Það er mjög beinvaxið og fallegt auk þess sem það getur vaxið mjög hratt. Stutt er líka í að ræktendum bjóðist yrki með rauðan blaðlit og hvítan stofn sem mun henta vel sem garðtré.

Í erindi sínu á fimmtudagskvöld gerir Þorsteinn líka grein fyrir spennandi möguleikum sem felast í tilraunum og ræktun nýrra birkitegunda sem eiga uppruna sinn í Asíu.

Kaffigjald er krónur 500.

Fræðslufundurinn er öllum opinn og eru félagar hvattir til að taka með sér gesti.

Hér má hlusta á viðtal við Þorstein um þessi efni úr Morgunglugganum á Rás 1 frá 7. apríl 2014.