Skógafoss. Wiki-mynd: Chris 73
Skógafoss. Wiki-mynd: Chris 73

Skógræktin varar við því að trjágróður sem skýlir ferðamannastaðnum við Skógafoss fyrir sterkum suðvestanáttum og vegfarendum fyrir sandfoki verði skertur. Jafnframt mælir Skógræktin með því að stuðlað verði að útbreiðslu birkis við Skógafoss, meðal annars til varnar áföllum vegna náttúruhamfara.

Horft niður að Skógum af brún Skógafoss. Fjær sést skóglendið sem skýlir svæðinu fyrir sunnan- og suðvestanáttum og þar með fyrir sandfoki. Wiki-mynd: BeFab4everSkógræktin hefur sent Umhverfisstofnun umsögn um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Skógafoss. Þar er bent á það gagn sem núverandi trjágróður í nágrenni fossins hefur á þessum fjölmenna ferðamannastað. Einnig er bent á hvernig stuðla má að útbreiðslu birkis og annars staðargróðurs sem veita muni skjól og draga úr þeirri ógn sem svæðinu stafar af eldgosum og öðrum náttúruöflum.

Mikilvægt er að tryggja gott samstarf hlutaðeigandi aðila um umhirðu skóglendis innan friðlýstra svæða og Skógræktin er ávallt reiðubúin í samstarf og ráðleggingar um málefni sem tengjast skógrækt og skógvernd. Skógræktin óskar eftir góðu samstarfi við Umhverfisstofnun um að vernda og stuðla enn frekar að vexti og útbreiðslu birkiskóganna þar sem það á við.

Hér fylgir umsögn Skógræktarinnar og athugasemdir um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Skógafoss.

Skógafoss - umsögn 2018Nánari upplýsingar veita Hreinn Óskarsson, sviðstjóri samhæfingarsviðs Skógræktarinnar, 899 1971hreinn@skogur.is, og Hrefna Jóhannesdóttir, skipulagsfulltrúi Skógræktarinnar, 626 1016hrefna@skogur.is.

Texti: Pétur Halldórsson