Mynd af malaraurum Krossár norðan Bása á Goðalandi tekin í átt að Réttarfelli og Valahnúk 2011. Mynd…
Mynd af malaraurum Krossár norðan Bása á Goðalandi tekin í átt að Réttarfelli og Valahnúk 2011. Mynd: Hreinn Óskarsson

Gjörbreytt gróðurlendi á rúmum tuttugu árum

Náttúrlegt íslenskt birki hefur breiðst mjög út á Þórsmerkursvæðinu síðustu áratugi eins og meðfylgjandi myndir sýna. Þetta er áberandi aurum Krossár og ár sem rennur úr Strákagili og mætti kalla Strákagilsá á Goðalandi.

Þegar ferðafélagið Útivist setti upp fyrsta skálann í Básum um 1980 voru settir varnargarðar svo að Strákagilsáin rynni ekki yfir svæðið og síðar voru settar bakkavarnir á Krossá hún færi ekki yfir landið. Fyrir því stóð Landgræðla ríkisins ásamt Vegagerð ríkisins. Aurarnir voru græddir upp með ýmsum aðferðum af starfsfólki Útivistar og fleirum og eru þar nú tjaldsvæði félagsins. Meðal annars var seyra úr kömrum sett í aurinn fyrstu árin. Greri hann því hratt upp og birki tók að sá sér út.

Meðfylgjandi myndir sem skógarvörðurinn á Suðurlandi tók árið 1990 og aftur árin 2010-13 segja meira en mörg orð um útbreiðslu birkiskógarins. Víðar um aurana breiðist birki út en Krossáin sem flæmist yfir aurana brýtur land og eyðir flestum birkitorfunum sem þar spretta upp með reglulegu millibili. En myndirnar segja meira en mörg orð.



Til viðbótar látum við fylgja skemmtilega mynd sem sýnir Krossána flæmast yfir nýgræður af birki Goðalandsmegin Krossáraurunum við Þvergil.


Myndir: Hreinn Óskarsson