(mynd: Edda S. Oddsdóttir)
(mynd: Edda S. Oddsdóttir)


Ber

Berin eru einnig óvenjuseint á ferðinni þetta haustið. Í flestum þjóðskógum um allt land eru enn 2-3 vikur í að bláber, rifsber, hindber og hrútaber verði fullþroskuð en krækiber eru víða tilbúin til tínslu.

Sveppir

Sveppir eru nú farnir að sjást í nokkrum þjóðskógum en þeir eru töluvert seinna á ferðinni en undanfarin ár. Sveppavöxtur er kominn af stað í skógum sunnan- og austanlands, nýhafinn á Vesturlandi en einhverjir dagar eru í sveppina á Norðurlandi. Bestu vaxtarskilyrði sveppa eru í hlýju og raka. Búast má við sérstaklega miklum sveppavexti eftir rigningar í ágúst.

Áhugi á sveppatínslu fer sífellt vaxandi, auk þess sem sveppategundum hér á landi fjölgar og útbreiðsla þeirra eykst. Í skógum víða um land er nú að finna fjölda sveppa frá miðju sumri og fram á haust. Við sveppatínslu er að mörgu að hyggja. Þó það sé bæði skemmtilegt og nytsamlegt að tína sveppi til matar, þá er nauðsynlegt að læra að þekkja þá sveppi sem ætir eru, matsveppina. Einnig þarf að huga að ýmsu hvað varðar hreinsun og geymslu sveppanna svo þeir njóti sín sem best við matargerð.
 

Skógræktin hefur tekið saman stuttan leiðbeiningarbækling sem áhugafólk um sveppatínslu getur stuðst við. Honum er hlaðið niður og hann er svo hægt að prenta út og taka með sér í sveppaferðir.

Þess má geta að árið 2009 kom, í fyrsta sinn í allnokkur ár, út íslensk bók um æta sveppi, Matsveppir í náttúru Íslands eftir Margréti Ásgrímsdóttur, en fyrri bækur hafa lengi verið uppseldar. Einnig vill Skógrækt ríkisins benda á að Náttúrufræðistofnun Íslands hefur skráð margar tegundir sveppa og mögulegt er að skoða útbreiðslu þeirra á Plöntuvefsjá stofnunarinnar.

Góða uppskeru og gangið vel um skógana!

Mynd: Edda Oddsdóttir
Texti: Esther Ösp Gunnarsdóttir