Milljónatjón varð þegar bálskýlið í Haukadalsskógi brann. Upplýsinga er óskað um mannaferðir í skógi…
Milljónatjón varð þegar bálskýlið í Haukadalsskógi brann. Upplýsinga er óskað um mannaferðir í skóginum fimmtudagskvöldið 4. febrúar. Ljósmynd: Trausti Jóhannsson

Eldsvoði varð í Haukadal síðastliðinn fimmtudag þegar bálskýlið í þjóðskóginum þar brann til kaldra kola. Skýlið sem var reist árið 2017 var stórt og stæðilegt og stóð í Hákonarlundi í Haukadalsskógi. Óvíst er um endurreisn skýlisins.

Skýlið gjöreyðilagðist líkt og meðfylgjandi myndir sína. Talið er að atvikið hafi orðið síðastliðið fimmtudagskvöld en enginn tilkynning um brunann barst og urðu starfsmenn Skógræktarinnar varir við brunann þegar þeir voru í eftirliti um svæðið daginn eftir. Þá var enn glóð í stólpum skýlisins.

Enginn hefur gefið sig fram varðandi málið en lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um brunann strax þegar starfsmenn Skógræktarinnar urðu varir við tjónið. Fyrst og fremst erum við þakklát fyrir ekki hafi orðið slys á fólki við svona stóran bruna en um talsvert tjón er um að ræða og kostnaðurinn við byggingu svona skýlis hleypur á milljónum.

Mikil mildi er að eldurinn skyldi ekki dreifst víðar en veður var hagstætt, raki í jörðu og vindur hægur. Skýlið stóð í miðjum skógi og hæglega hefði eldur getað læst sér í skóginn og valdið gríðarlegu tjóni. Ljóst er að eldhafið hefur verið gríðarlegt en skýlið var yfir 5 metra hátt og byggt úr stórviði úr skóginum. Eldsúlan hefur því væntanlega verið há og mikil.

Skýlið hefur verið afar vinsæll viðkomustaður heimamanna úr sveitinni og ferðamanna innlendra sem erlendra og því mikill missir að því. Óvíst er á þessari stundu hvort það verði endurbyggt enda engar tryggingar sem ná yfir svona mannvirki. Allar ábendingar um málið má senda á trausti@skogur.is .

Texti og myndir: Trausti Jóhannsson