Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir rannsóknastyrki í landgræðslu og skógrækt, með sérstakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. Til úthlutunar verða samtals 4 milljónir króna. Styrkirnir eru lausir til umsóknar frá og með 1. desember 2010 og umsóknum skal skilað eigi síðar en 10. janúar 2011.

Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðum Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og Skógræktarfélags Íslands (skog.is). Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í einu pappírseintaki og á tölvutæku formi (á geisladiski sem rtf, pdf eða word skjal). Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá. Umsóknum skal skila til: Landgræðslusjóðs, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík. Skrifa skal skýrt á umslag: „Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson".

Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson.

Fréttatilkynning um stofnum minningarsjóðsins.

lupina-og-skogur-Brynja-H

Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir