Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, hefur skipað Árna Bragason í embætti landgræðslustjóra til næstu fimm ára. Árni hefur frá árinu 2010 starfað sem forstjóri Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar, Nordgen í Svíþjóð. Frá þessu er sagt á vef ráðuneytisins í dag.

Valnefnd skipuð af ráðherra mat Árna hæfastan meðal umsækjenda til að gegna embætti landgræðslustjóra. Árni lauk doktorsgráðu í jurtaerfðafræði frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn með erfðafræði og lífeðlisfræði sem aukagreinar og B.Sc.-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands. Árni hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri. Áður en Árni tók við stöðu forstjóra Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar starfaði hann hjá verkfræðistofunni Eflu. Þar á undan starfaði hann sem forstöðumaður náttúruverndar- og útvistarsviðs Umhverfisstofnunar, forstjóri Náttúruverndar ríkisins og sem forstöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá.

Að auki hefur Árni gegnt fjölmörgum nefndar- og trúnaðarstörfum á sviði náttúruverndar- og umhverfismála.

Árni er skipaður í embætti landgræðslustjóra frá 1. maí nk.

Árni er kvæntur Önnu Vilborgu Einarsdóttur og eiga þau þrjú uppkomin börn.

Til gamans birtum við hér gamla mynd af Árna í skógi. Myndina tók Aðalsteinn Sigurgeirsson í Lundi Dalbæjarbóndans í Eldhrauni fyrir réttum 23 árum. Skógrækt ríkisins óskar Árna til hamingju með embættið og velgengni í nýju starfi.