Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um líforku, PELLETime symposium, dagana 18. - 20. ágúst nk. í íþróttahúsinu á Hallormsstað á Fljótsdalshéraði. Ráðstefnan er hluti af PELLETimeverkefninu sem Héraðs-og Austurlandsskógar ásamt Skógrækt ríkisins á Austurlandi taka þátt í á vegum Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins (NPP). Auk þessara aðila á Íslandi taka stofnanir í Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi þátt, en Finnar leiða verkefnið. Fjallað verður um líforku, timbur og skyld efni og hvernig við getum nýtt okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt. Ráðstefnan mun fara fram á ensku, en fyrirlesarar eru m.a. frá Íslandi, Noregi, Skotlandi, Finnlandi og Svíðþjóð.

Ráðstefnan hefst á hádegi þann 18. ágúst. Ráðstefnugjöld eru kr. 5.000 og innifalið í því er ráðstefnan, tveir kvöldverðir og skoðunarferð þann 20. ágúst. Nemar greiða engin ráðstefnugjöld.

Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið; skogar@heradsskogar.is. Væntanlegum þátttakendum er bent á gistimöguleika á Hallormsstað sem finna má á slóðinni: http://www.graihundurinn.is og í síma: 471-2400.


Gögn: