Ágúst Sigurðsson. Ljósmynd: RML/MAR
Ágúst Sigurðsson. Ljósmynd: RML/MAR

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að skipa Ágúst Sigurðsson sem forstöðumann Lands og skógar. Nýr forstöðumaður mun vinna ásamt núverandi forstöðumönnum Skógræktarinnar og Landgræðslunnar og starfsfólki að undirbúningi sameiningar stofnananna sem gengur í gildi um áramótin.

Starfsfólki stofnananna var tilkynnt þetta á fundi með ráðherra eftir hádegi í dag. Ágúst hlaut doktorsgráðu í erfðafræði frá sænska Landbúnaðarháskólanum í Uppsölum árið 1996 og útskrifaðist með B.Sc.-gráðu frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 1989.

Ágúst var sveitarstjóri Rangárþings ytra frá árinu 2014 til 2022 og rektor við Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2004 til 2014 þar sem hann stýrði m.a. sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskóla ríkisins. Þá starfaði Ágúst sem landsráðsnautur í búfjárerfðafræði og hrossarækt hjá Bændasamtökum Íslands frá árinu 1996 til 2004. Ágúst hefur setið í stjórnum, ráðum, nefndum og hópum tengdum meðal annars landbúnaði, landgræðslu, hrossarækt og háskólamálum. Hann hefur ritað fjölda vísindagreina í alþjóðlegum ritrýndum vísinda- og ráðstefnuritum ásamt greinum í fagtímarit og blöð.

Á starfsmannafundinum sem fram fór kl. 14 í dag sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra m.a. að Ágúst myndi hefja störf fljótlega og vinna ásamt fráfarandi forstöðumönnum, ráðgjöfum og starfsfólki að sameiningu stofnananna sem renna saman í Land og skóg um áramótin.

 Texti: Pétur Halldórsson