- 9 stk.
- 21.06.2019
Tekið var á móti gestum í Þjórsárdalsskógi um síðustu helgi þar sem boðið var upp á bakaðar lummur, ketilkaffi, heitt súkkulaði og greinabrauð fyrir börnin. Viðburðurinn var liður í dagskránni „Upp í sveit“ sem fram fór 14.-17. júní 2019 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Upp í sveit er sveitahátíð íbúa í sveitarfélaginu og ættingja þeirra, þar sem áhersla er lögð á að öll sveitin taki þátt í leikjum og afþreyingu af ýmsum toga s.s. brennu og brekkusöng, ratleik sem allir geta tekið þátt í, tónleikum, gönguferð, markaði, brokk og skokk, morgunverði, hádegisverði, fjöri í skóginum uppi í sveit og svo mætti lengi telja.