Skógrækt með skipulag, öryggi og eldvarnir í huga verður til umfjöllunar á opinni ráðstefnu um almannavarnir og skipulag sem fram fer á Selfossi föstudaginn 17. maí.

Ráðstefnuna halda Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) ásamt lögreglustjóraembættunum á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum í samstarfi við Skipulagsstofnun.

Í erindum á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir náttúruvá á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum, horft til afleiðinga þeirra og tíðni. Litið verður til fenginnar reynslu um hvað reynist vel og hverju sé ábótavant, til dæmis í umsagnarferli vegna skipulagsmála. Fjallað verður um sýn á almannavarnir og skipulag byggðar með tilliti til náttúruvár, forvarnarþátt almannavarna og með hvaða hætti sé hægt að draga úr líkum á tjóni vegna skipulags.  Einnig koma loftslagsbreytingar við sögu, velt upp við hverju megi búast og hvaða áhrif yfirvofandi breytingar geti haft á skipulag á Suðurlandi til lengri tíma, svo sem breytt sjávarstaða, bráðnun jökla, hlýnun andrúmsloft og fleira.

Ráðstefnan er opin en skráningar er óskað á vef SASS.

 

Dagskrá ráðstefnunnar

9.00  Kaffi og skráning

9.30   Ráðstefna opnuð   Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Vestmannaeyjum

9.35   Setning ráðstefnu – Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir dómsmálaráðherra

9.45  Náttúrurvá á Suðurlandi. Gerð grein fyrir náttúruvá á Suðurlandi og Vestmannaeyjum, horft til afleiðinga og tíðni. Umsagnir og hvað virkar og hvað vantar. Hvað þarf að bæta í umsagnarferli vegna skipulagsmála. – Jórunn Harðadóttir, Veðurstofu Íslands

10.25   Sýn á almannavarnir. Forvarnarþáttur almannavarna með hvaða hætti er hægt að draga úr líkum á tjóni vegna skipulags. Hver er staðan í dag og hvað þarf að bæta  reynsla og dæmi. – Víðir Reynisson

10.45   Skipulag byggðar með tilliti til náttúruvár – Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar    

11.05   Loftlagsbreytingar – áhrif á skipulag. Við hverju má búast og hvaða áhrif getur það haft á skipulag á Suðurlandi til lengri tíma á suðurlandi.  (sjávarstaða, bráðnun jökla, hlýnur andrúmslofts o.sfr.) – Halldór Björnsson Veðurstofu Íslands

11.30 Tryggingar og náttúruvá – Hulda  Ragnheiður Árnadóttir, Náttúruhamfaratryggingum Íslands

Hvaða áhrif hefur það á tryggingar mannvirkja sem byggð eru á náttúruhamfarasvæði. Lög og skyldur Náttúruhamfaratrygginga Íslands.

12.00 – 13.00   Matarhlé – Léttur hádegisverður á Hótel Selfossi í boði SASS

13.00   Sjónarmið –  frá skipulagslegu viðhorfi

Manngerðir jarðskjálftar. Áhrif og aðkoma skipulagsyfirvalda sveitarfélag hvað má betur fara – Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar

Sumarbústaðasvæði. Úttekt sveitarfélagsins, lærdómur og áhrif á skipulag og hvað má bæta. – Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar

Skógrækt – skipulag. Skógrækt með  skipulag, öryggi og eldvarnir í huga. – Björn B. Jónsson, verkefnastjóri Skógræktinni

Varúðarsvæði og náttúruvá. Áhrif á skipulag – Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar

Eldgosavá – jökulflóð –  berghlaup – Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri  Höfn Hornarfirði

14.00   Pallborð – náttúrvá og skipulagsmál

Spurningar frá ráðstefnuhaldara og einnig úr sal um það sem fram hefur komið á ráðstefnunni. Hverju þarf að huga betur að og hver eiga að vera næstu skref?

Fulltrúar í pallborði

  • Formaður stjórnar SASS                Eva Björk Harðardóttir
  • Veðurstofa Íslands                          Halldór Björnsson
  • Skipulagsstofnun                             Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
  • Sveitarfélögunum                            Ásta Stefánsdóttir
  • Almannavarnir                                  Víðir Reynirsson

Ráðstefnuslit: Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra