Samson Bjarnar Harðarson, lektor í landslagsarkitektúr við LBHÍ, og Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir, brautarstjóri í skógfræði við LBHÍ og sérfræðingur hjá Skógræktinni, kenna á námskeiði Endurmenntunar LbhÍ sem hefst 21. ágúst þar sem fjallað verður um helstu tegundir trjáa og runna, auk nokkurra fjölærra plantna sem notaðar eru til uppbyggingar grænna svæða s.s. í borgar- & útivistarskógum, skógarjöðrum og skjólbeltum á Íslandi.

Á námskeiðinu verður farið gegnum grasafræðilega flokkun tegundanna og heiti, útlitseinkenni og hvernig skuli greina þær til tegunda. Nemendur öðlast góða þekkingu á plöntum út frá atriðum eins og stærð og vaxtarlagi, kröfur til vaxtarskilyrða og viðnámsþróttar.

Nánar