Rannsóknir með áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu

Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir rannsóknar­styrki í landgræðslu og skógrækt, með sér­stakri áherslu á vistfræði lúpínu og land­græðsluskógrækt með lúpínu.  Til úthlutun­ar verða sjö milljónir króna. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. janúar 2020.

Hjálmar R. Bárðarson, f.v. siglingamála­stjóri, ánafnaði Landgræðslusjóði 30% af eigum sínum, en hann lést 7. apríl 2009. Óskaði hann eftir því að fénu yrði varið til landgræðsluskógræktar, „þar sem áður var lítt gróið bersvæði, ef til vill þar sem gróðursett lúpína hefur gert landsvæði vænlegt til skógræktar“, eins og segir í erfðaskránni.

Ákveðið var að verja hluta arfsins til stofnunar sjóðs, sem starfa myndií 10 ár, með það markmið að styrkja rannsóknir í landgræðslu og skógrækt, með sérstakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðslu­skógrækt með lúpínu. Landgræðslan, sem erfði Hjálmar til jafns við Land­græðslusjóð, lagði sjóðnum einnig til fé. Er sjóðnum ætlað að heiðra minningu Hjálm­ars og konu hans Else Sörensen Bárðar­son, sem andaðist 28. maí 2008.

Styrkþegar geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og opinberir aðilar.

Umsóknir sendist til: Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson, bt. Guðbrands Brynjúlfssonar, Brúarlandi, 311 Borgarnes