Enn er nóg af birkifræi og fram undan gott veður til að tína. Hjálpumst að við að ná markmiðum ársin…
Enn er nóg af birkifræi og fram undan gott veður til að tína. Hjálpumst að við að ná markmiðum ársins! Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Landsverkefnið Söfnum og sáum birkifræi hvetur landsmenn til að skila nú á söfnunarstöðvar því fræi sem safnast hefur. Nokkuð vantar upp á að markmið ársins hafi náðst. Enn er líka nóg af fræi á trjánum og fram undan góðir veðurdagar til að safna.

Nú er fræsöfnunartíminn í hámarki og allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til að fara út að tína meðan tíðin er góð. Mest er um fræ á norður- og austurhluta landsins þetta árið og þótt minna sé í öðrum landshlutum ætti það ekki að fæla fólk frá að tína því víðast hvar má finna gjöful tré til að tína af. Fræið helst gjarnan á trjánum langt fram á vetur.

Allir geta orðið fræsafnarar
og frægjafar

Verkefnið gefur almenningi færi á að leggja sitt af mörkum til landbótastarfs og stuðlar þannig að auknum skilningi á mikilvægi landbótastarfs í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Markið er sett á að auka þekju birkiskóga og birkikjarrs úr 1,5% landsins í 5% áður en áratugurinn er úti. Það er markmið Íslands í svokallaðri Bonn-áskorun Evrópulanda um aukna skógarþekju í þágu manns og náttúru.

Tökum þátt í að safna birkifræi í haust og annað hvort sáum því sjálf í valin svæði eða skilum því í sérstaka merkta kassa í Bónusverslunum eða Olísstöðvum um allt land. Deilum myndum og frásögnum á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #birkifræ og notum @birkifræ til að tengja innleggin samfélagsmiðlum fræsöfnunarinnar.

Texti:  Kristinn H. Þorsteinsson og Pétur Halldórsson