Haldið á Kirkjubæjarklaustri í samstarfi við Vinnueftirlitið

Námskeiðið er ætlað bændum og þeim sem vinna við búskap en er einnig opið öðrum áhugasömum.

Tveggja daga bóklegt námskeið sem veitir réttindi til að taka verklegt vinnuvélapróf á dráttarvélar, liðléttinga og ýmsar minni gerðir vinnuvéla í réttindaflokki „I“ og lyfturum í flokki „J“, þar með talið skotbómulyftara. Námskeiðið er hefðbundið vinnuvélanámskeið en er aðlagað að bændum. Einnig verður fjallað um gerð áætlunar um öryggi og heilbrigði (áhættumat starfa) á vinnustað.

Ávinningur
Bókleg réttindi á vinnuvélar í réttindaflokkum „I“ og „J“. Aukin þekking á vinnuverndarmálum og hvernig á að gera áhættumat starfa.

1. hluti, fyrri dagur. Vinnuvernd og áhættumatsgerð. 
Hægt er að skrá sig eingöngu á 1. hlutann ef viðkomandi er með vinnuvélaréttindi en vill fara yfir vinnuverndarmál og gerð áhættumats með viðeigandi gátlistum. Verðið er þá eingöngu 5.900kr.

2. hluti fyrri dagur og 3. og 4. hluti seinni dagur. 
Ýmsir fræðilegir þættir og öryggi, dráttarvélar með tækjabúnaði og ýmsar minni gerðir véla/jarðvinnuvéla í réttindaflokki „I“ og lyftarar með allt að 10 tonna lyftigetu í réttindaflokki „J“. 

Námskeiðinu lýkur með skriflegu krossaprófi, sem lagt er fyrir að loknum 4. hluta.

 Sækja um

 

Til að geta fengið vinnuvélaréttindi/skírteini þarf viðkomandi að: 

  • Sitja þetta tveggja daga námskeið og standast krossapróf í lokin
  • Hafa náð 17 ára aldri
  • Hafa gilt ökuskírteini
  • Fengið þjálfun í notkun vinnuvéla hjá kennara með vinnuvélakennararéttindi
  • Óska eftir og standast verklegt próf
  • Sækja um og fá útgefið vinnuvélaskírteini

Þeir sem uppfylla ofangreind skilyrði geta óskað eftir því að taka verklegt próf að loknu námskeiði. Verklega prófið má þó taka síðar með aðkomu viðurkennds prófdómara frá Vinnueftirlitinu. Þegar verklega prófið er tekið er einnig sótt um vinnuvélaskírteini til Vinnueftirlitsins.

Kennsla: Sérfræðingar frá Vinnueftirlitinu

Verð: 44.000 (bókleg kennsla, kennslugögn, veitingar og bóklegt próf er innifalið í verði)

Verklegt próf og skírteini: Verklegt próf kostar 6.630 krr á hvern flokk og skírteini kostar 9.010 kr. sem greiðist beint til Vinnueftirlitsins