Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að hafa öðlast yfirsýn og skilning á ólíkum þáttum skipulags- og hönnunarvinnu sem er undanfari framkvæmda á áfangastöðum í náttúrunni.
Námstefnustjóri: Anna María Bogadóttir arkitekt
Tími: Fös. 21. febrúar, kl. 10-16 hjá LbhÍ á Keldnaholti Reykjavík
Verð: 24.000 kr.
Dagskrá námstefnunnar
10.00 -10.10 – Inngangur, velkomin
10.10-10.50 – Uppbygging innviða til verndar náttúru. Rekstur áfangastaða. Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
10.50-11.30 – Menningarminjar. Skipulag og undirbúningur á ferðamannastöðum. Uggi Ævarsson minjavörður og Sólrún Inga Traustadóttir, fornleifafræðingur hjá Minjastofnun Íslands
11.30-12.00 – Umræður. Anna María Bogadóttir arkitekt
12.00-12.40 – Matur
12.40-13.20 – Framkvæmdasjóður ferðamannastaða. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Ferðamálastofa
13.20-14.00 – Góðir áningastaðir. hönnun og skipulag ferðamannastaða. Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt hjá Landslagi.
14.00-14.20 – Kaffi
14.20-15.00 – Staðbundinn efniviður og staðbundin þekking í uppbyggingu göngustíga og annarra innviða. Örn Þór Halldórsson arkitekt, Ascent-verkefnið.
15.00-15.40 – Heildræn hugsun landslagshönnunar á framkvæmdastöðum. Áslaug Traustadóttir landslagsarkitekt
15.40-16.00 – Umræður og samantekt. Anna María Bogadóttir arkitekt