Viðbótarnámskeið í trjáfellingu og grisjun með keðjusög verður haldið á Reykjum í Ölfusi 25.-27. janúar 2022. Það er öllum opið og hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu, leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.

Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inn á hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju.

Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Þetta er þriggja daga námskeið á framhaldsskólastigi sem meta má til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

  • Kennsla: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá LbhÍ
  • Tími: Þri. 25. jan. kl. 9-17.30, mið. 26. jan. kl. 9-17.30 og fim. 27. jan. 9-16 (3 dagar/28 kennslustundir).
  • Staður: Hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi
  • Verð: 69.000 kr. (Verkleg og bókleg kennsla í þrjá daga, fatnaður, tækja- og öryggisbúnaður, hádegismatur og kaffiveitingar innifalið í verði)
  • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.