Námskeiðið sem hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu en einnig leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Þá verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inn á einfalda bilanaleit í söginni og nemendur læra um hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá LbhÍ.

Tími: Þri. 26. jan. kl. 9-17.30, mið. 27. jan. kl. 9-17.30 og fim. 28. jan. 9-16 (3x) hjá LbhÍ á Reykjum (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur er til 19. janúar 2021

Verð: 54.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

Umsókn - námskeið á Reykjum í Ölfusi

Skrá mig

 UMSAGNIR

Reyndir kennarar, mikið verklegt, góður matur, áhugavert.“

„Mjög fróðlegt – hæfilega mikið bóklegt hæfilega mikið verklegt.“

„Mjög gagnlegt, samantekt af góðri þekkingu og reynslu sem skilar sér til allra nemenda – frábært.“