Haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur

Námskeið sem hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og hefur notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar t.d. kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, ömmum, öfum og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að nota ferskan við úr skóginum, garðinum eða sumarbústaðarlandinu.

  • Á námskeiðinu lærir þú öruggu hnífsbrögðin sem auka afköst og öryggi í tálgun með hníf og exi
  • þú kynnist ýmsum íslenskum viðartegundum, eiginleikum þeirra og nýtingarmöguleikum
  • þú lærir að tálga nytjahluti og skrautmuni úr efni sem almennt er kallað „garðaúrgangur“
  • þú lærir að grisja tré og hvar megi finna efni í einstök tálguverkefni
  • þú lærir að umgangast og hirða bitáhöld í ferskum viðarnytjum, hnífa, klippur, exi og sagir
  • þú lærir að fullgera tálguhluti, þurrka, pússa og bera á
  • þú lærir að lesa í skógarefnið út frá útliti, eiginleikum og notagildi gripanna
  • þú lærir að skefta, búa til sleif, fugl, bolla, snaga eða það sem hugur þinn og geta leyfir

Allt efni og áhöld eru til staðar á námskeiðinu. Verið í vinnufatnaði þegar þið komið eða takið með ykkur svuntu og fatnað eftir veðri vegna skógarferðar. Hægt verður að kaupa tálguhníf á námskeiðinu fyrir þá er vilja

Kennari: Ólafur Oddsson, fræðslufulltrúi Skógræktarinnar og verkefnisstjóri Lesið í skóginn.

Tími: Fös. 22. feb, kl. 16:00-19:00 og  lau. 23. feb, kl. 9:00-16:00 (14 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi.

Sækja um: Vefur Endurmenntunar LbhÍ