Ólafur Oddsson, skógfræðingur og kennari, leiðbeinir á námskeiði um grisjun trjáa og tálgun úr grisjunarefni sem haldið verður að Reykjum í Ölfusi 14.-15. janúar 2022.

Námskeiðið hefur þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og notið mikilla vinsælda.

Námskeiðið er öllum opið og hentar m.a. kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, ömmum, öfum og öðrum sem vilja læra hvernig hægt er að nota ferskan við úr skóginum, garðinum eða sumarbústaðarlandinu.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að grisja tré og hvar megi finna efni í einstök tálguverkefni. Örugg hnífsbrögð sem auka afköst og öryggi í tálgun með hníf og exi eru kennd og hvernig skuli umgangast og hirða bitáhöld í ferskum viðarnýtjum, hnífa, klippur, exi og sagir.

Þátttakendur læra að lesa í skógarefni út frá útliti, eiginleikum og notagildi gripanna og kynnast ýmsum íslenskum viðartegundum, eiginleikum þeirra og nýtingarmöguleikum.

Auk þess læra þátttakendur að tálga nytjahluti og skrautmuni úr efni sem almennt er kallað „garðaúrgangur“, fullgera tálguhluti, þurrka, pússa og bera á, skefta, búa til sleif, fugl, bolla, snaga eða það sem hugur hvers og geta leyfir.

Mikilvægt er að vera í vinnufatnaði þegar komið er á námskeiðið og taka með svuntu og fatnað eftir veðri vegna skógarferðar. Allt efni og áhöld eru til staðar á námskeiðinu en hægt verður að kaupa tálguhníf á námskeiðinu fyrir þau sem vilja.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 10

    • Kennsla: Ólafur Oddsson, verkefnisstjóri Lesið í skóginn og fyrrverandi fræðslufulltrúi Skógræktarinnar.
    • Tími: Fös. 14. janúar kl. 16-19 og lau. 15. janúar kl. 9-16.
    • Staður: Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.
    • Verð: 42.900 kr. (Allur efniskostnaður, áhöld, kaffi og hádegismatur er innifalinn í verði námskeiðsins).
    • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.