Fjallað verður um aðsteðjandi hættu vegna sjúkdóma og meindýra í skógum á ráðstefnu sem skógasvið norrænu erfðavísindastofnunarinnar NordGen heldur á Hótel Örk Hveragerði 17.-18. september.

Skráningu lauk 17. ágúst 2019

Yfirskrift ráðstefnunnar er Future Forest Health – Early detection and mitigation of invasive pests and diseases in Nordic forests. Það þýðir að skógarheilsa í framtíðinni verður til umfjöllunar, hvernig greina megi á fyrstu stigum nýja skaðvalda og bregðast við skæðum nýjum skaðvöldum og sjúkdómum í skógum á Norðurlöndunum.

Staður: Hótel Örk, Hveragerði

Stund: 17.-18. september 2019

Töluverð ógn stafar af skaðvöldum sem herjað geta á skóga í barrskógabeltinu. Ógn sem steðjar að skógunum steðjar um leið að skógrækt og skógarnytjum. Á ráðstefnunni í september verður einkum litið til þeirrar hættu sem skógrækt og skógarnytjum á Norðurlöndunum, ekki síst framleiðslu skógarplantna, getur stafað af því þegar nýjar tegundir skaðvalda berast til landanna. Helstu viðfangsefni sem tekin verða fyrir í erindum og umræðum á ráðstefnunni verða:

  • Loftslag og útbreiðsla ágengra skaðvalda í skógum með sérstakri áherslu á plöntuframleiðslu
  • Plöntuheilsa á Norðurlöndunum nú
  • Aðgerðir til að draga úr áhrifum skaðvalda í skógum; aðgerðir til að hamla gegn innflutningi nýrra tegunda skaðvalda; aðgerðir til að eyða nýjum tegundum skaðvalda; kynbætur til að auka mótstöðuafl
  • Möguleg áhrif loftslagsröskunar á skógarskaðvalda og timburframleiðslu á Norðurlöndunum

Kynnisferð verður á dagskrá ráðstefnunnar seinni daginn, 18. september. Þar verða skoðuð áhrif af jarðhita sem skyndilega kom upp í skógi á Reykjum í Ölfusi eftir jarðskjálfta. Skoðaðar verða tilraunir með kynbætur á alaskaösp til að auka mótstöðuafl hennar við ryðsvepp, einnig notkun líffræðilegra varna í ylrækt að Friðheimum í Biskupstungum og loks verður Hekluskógaverkefnið kynnt.

Daginn eftir að ráðstefnunni lýkur, 19. september, verður tengsladagur SNS haldinn í Reykjavík. þar getur fólk komið saman og leitað að mögulegu samstarfsfólki að verkefnum, sérfræðingum sem því væri akkur að komast í samband við eða mynda samstarfshópa og samstarfsnet. Doktorsnemum standa til boða ferðastyrkir til að  geta tekið þátt í þessum viðburðum.

Ef spurningar koma upp eða nánari upplýsinga er óskað, vinsamlega hafið samband með því að senda línu á netfangið forest@nordgen.org.

Texti: Pétur Halldórsson