Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði laugardaginn 6. mars um ræktun berjarunna. Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um ræktun berjarunna bæði til nytja og yndis.

Á námskeiðinu verður farið yfir hverjar séu helstu tegundir berjarunna í ræktun hér á landi. Hvernig skuli staðið að útplöntun þeirra með tilliti til sem mestrar uppskeru. Hvernig er best að staðsetja runnana út frá skjóli og birtu. Hverjar eru þarfir mismunandi tegunda með tilliti til jarðvegs, áburðar, klippingar og annarrar umhirðu. Helstu tegundir sem teknar verða fyrir eru rifsættkvíslin, reynir, rósir, jarðarber, vínber í gróðurhús, hindber og brómber.

Fjallað verður um helstu meindýr og sjúkdóma í berjaræktun og hvernig best er að verjast þeim. Er hægt að verja uppskeruna fyrir ágengum fuglum? Hvernig á að standa að uppskerunni, á hvaða tíma og hvaða möguleikar eru við geymslu hennar.

Einnig verður rætt um úrvinnslu afurðanna og nemendur fá nytsamlegar uppskriftir af réttum þar sem uppskeran leikur stórt hlutverk.

Möguleikar á lífrænni ræktun eru skoðaðir og hvernig hægt er að nota afskurði úr ræktuninni í safnhaugagerð.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 20.

  • Kennari: Jón Kr. Arnarson, garðyrkjufræðingur og verkefnisstjóri LbhÍ
  • Tími: Lau. 6. mars, kl. 9-15 hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi
  • Verð: 29.000 kr. (Námskeiðsgögn, kaffi og hádegismatur er innifalið í verði)