Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði um jarðgerð í Hveragerði 20. mars. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á endurnýtingu lífrænna afurða sem til falla á heimilum og görðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriði jarðgerðar, hvaða hráefni sé hægt að nýta til jarðgerðar og æskileg blöndunarhlutföll þeirra.

Farið verður yfir meðhöndlun og umhirðu safnhaugsins með tilliti til þess hvernig ná megi jöfnu og góður niðurbroti. Lokaafurð jarðgerðar er kjörin áburður til notkunar í heimilisgarðinn, landgræðslu eða skógrækta.

Hluti námskeiðsins er verkleg sýnikennsla.

  • Kennari: Gunnþór K. Guðfinnsson garðyrkjufræðingur og stundarkennari við LbhÍ.
  • Hámarksfjöldi þátttakenda: 18.
  • Tími: Lau. 20. mars, kl. 9-15 hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi
  • Verð: 29.000 kr. (Námskeiðsgögn, kaffi og hádegismatur er innifalið í verði)
  • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám