Haukadalsskógur verður opinn tvær helgar í desember fyrir fólk sem vill koma í skóginn til að sækja sér jólatré, njóta útivistar og góðrar samveru. Ketilkaffi verður á könnunni og piparkökur í krús.

Haukadalsskógur er steinsnar frá Geysi í Haukadal og er afleggjarinn að skóginum er rétt austan við hverasvæðið.

Opið verður frá kl. 11 til 15 laugardag og sunnudag 7.-8. desember og aftur helgina 14.-15. desember.

Jólatrén kosta það sama þetta árið og undanfarin ár, engin verðbólga á þeim bænum. Tré allt að tveimur metrum á hæð kosta 5.500 kr., tveggja til þriggja metra tré 6.500 kr. og tré sem eru yfir þremur metrum kosta 7.500 kr. Í skóginum má finna stafafuru, rauðgreni og blágreni. Einnig verða seldar jólagreinar og tröpputré. Boðið verður upp á ketilkaffi og piparkökur.

Velkomin í Haukadalsskóg!

Upplýsingar um fleiri viðburði tengdar jólum, jólatrjám og skógum á aðventunni má finna hér.