Landbúnaðarháskóli Íslands í samstarfi við Umhverfisstofnun, Vinnueftirlitið og Landssamtök meindýraeyða stendur fyrir námskeiði í mars um meðferð plöntuverndarvara og útrýmingarefna. Taka má námskeiðið í heild eða hluta þess eftir því hverju hefur verið lokið áður eða hvort fólk hyggst selja varnar- og útrýmingarefni eða vinna með þau.

Námskrá námskeiðsins byggist á ákvæðum samkvæmt reglugerð.

Námskeiðið skiptist í þrjá hluta, þar sem hver um sig stendur sjálfstætt og er sett upp fyrir eftirfarandi markhópa:

  1. Þá sem hyggjast gerast ábyrgðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara eða útrýmingarefna
  2. Þá sem hyggjast nota plöntuverndarvörur í landbúnaði og garðyrkju, þ.m.t. garðaúðun
  3. Þá sem hyggjast nota útrýmingarefni við eyðingu meindýra

Allir þrír hlutarnir eru kenndir samhliða í nokkuð samfelldri lotu. Athugið að sá hluti sem ætlaður er þeim sem hyggjast gerast ábyrðarmenn í markaðssetningu plöntuverndarvara eða útrýmingarefna er innifalinn í báðum hinum hlutunum.

Þeir sem uppfylla skilyrði til þess að geta sótt um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum til þess að nota í landbúnaði og garðyrkju eða notendaleyfi fyrir útrýmingarefnum til eyðingar meindýra og vilja bæta við sig þeim hluta sem vantar upp á, þurfa ekki að taka sameiginlegan hluta námskeiðsins og verða ekki prófaðir aftur úr honum.

Bókleg kennsla fer fram hjá LbhÍ að Keldnaholti í Reykjavík, hægt verður að taka hluta námsins í fjarnámi, þ.e. fyrirlestrar verða teknir upp og lagðir út á námsvef skólans, þar sem nemendur munu geta hlustað á fyrirlestrana. Verkleg kennsla fer fram í og við skólahúsnæðið og því verður sá hluti ekki aðgengilegur á vefnum.

Skráning gengur vel og verður námskeiðið haldið 8.-12. mars, sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan.

Nánar um námið

Námskeiðið er ætlað þeim sem bæði vilja öðlast notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörum vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju að garðaúðun meðtalinni og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.

Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni og hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varanna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt. Fjallað verður um lífshætti helstu meindýra hér á landi, bæði hryggleysingja og hryggdýra, farið yfir helstu lög og reglugerðir sem snerta starfsemi meindýraeyðaog  fjallað um meðferð, rétt val og öryggi ýmiss konar búnaðar sem meindýraeyðar nýta í starfi sínu. Kynnt verður virkni og skaðsemi þeirra efna sem meindýraeyðar nota í sínu daglega starfi sem og rétt förgun efnanna. Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið verður yfir hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á plöntuverndarvörum og útrýmingarefnum , ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.

  • Námsmat: Fjölvalsspurningapróf verður lagt fyrir mán. 15. mars. Nemandi skal að lágmarki fá 7,0 í einkunn fyrir hvern matshluta. Þeir sem standast próf fullnægja skilyrðum Umhverfisstofnunar til þess að sækja um notendaleyfi fyrir plöntuverndarvörur vegna notkunar í landbúnaði og garðyrkju og fyrir útrýmingarefni vegna notkunar við eyðingu meindýra.
  • Kennarar: Bjarni Pálsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Bjarni Þór Hannesson golfvallatæknifræðingur, Björn Gunnlaugsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Friðrik Daníelsson, verkefnastjóri hjá Vinnueftirlitinu, Guðborg Auður Guðjónsdóttir, lyfjafræðingur og sérfræðingur í klínískri eiturefnafræði við HÍ, Guðmundur Halldórsson, rannsóknarstjóri hjá Landgræðslunni, Guðmundur Óli Scheving meindýraeyðir, Helga Ösp Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Páll Stefánsson, Heilbrigðiseftirliti Hafnafjarðar og Kópavogs, Svava Þórðardóttir, lyfjasérfræðingur hjá HÍ, og Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST)
  • Kennsla: Mán. 8. mars-fös. 12. mars hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík
  • Verð: 136.200 kr.
  • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

Allt námskeiðið:

Umsókn

Námskeið fyrir ábyrgðarmenn í markaðssetningu:

Umsókn

Skráning fyrir fólk sem er þegar með annan hlutann en vill bæta hinum við:

Umsókn