Námskeið í trjáfellingum og grisjun með keðjusög verður haldið á Vöglum í Fnjóskadal 30. maí til 1. júní. Það er öllum opið og hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 og skráningarfrestur er til 22. maí.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagurinn er bóklegur og þá verður meðal annars farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka hana í sundur. Farið verður yfir það hvernig framkvæma skal einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrifum sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

  • Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).
  • Tími: Þri. 30. maí kl. 9-17.30, mið. 31. maí. kl. 9-17.30 og fim. 1. jún. kl. 9-16 (3x) hjá Skógræktinni á Vöglum (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.
  • Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is.
  • Verð: 74.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

Skráningarfrestur er til 22. maí.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson