Ólafur Oddsson, skógfræðingur og þúsundþjalasmiður, kennir húsgagnagerð úr skógarefni á námskeiði sem Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir 25.-26. febrúar 2022. Þar geta allir sem vilja lært að smíða úr því efni sem fellur til við grisjun í skógum.

Námskeiðið er haldið í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur. Það hefur  þróast upp úr námskeiðinu Lesið í skóginn tálgað í tré sem hefur verið kennt í frá árinu 2001 og notið mikilla vinsælda.

Þetta námskeið er öllum opið og hentar m.a. kennurum, sumarbústaðafólki, skógareigendum, skógræktarfólki, handverksfólki og öðrum er vilja læra hvernig hægt er að smíða úr því efni sem er að falla til við grisjun.

Á námskeiðinu kynnist fólk eiginleikum einstakra viðartegunda og nýtingu grisjunarefnis í húsgagnagerð ásamt öðrum hefðbundnum nytjum þess. Þátttakendur kynnast fersku og þurru efni og samsetningu þess, læra að afberkja, ydda, setja saman og fullvinna húsgögn, m.a. setja saman kolla og bekki úr greinaefni og bolviði eða skógarfjölum. Þá er yfirborðsmeðferð og fúavörn líka kennd á námskeiðinu.

Öll verkfæri og efni eru til staðar. Verið í vinnufatnaði þegar þið komið á námskeiðið eða takið með ykkur svuntu og útifatnað eftir veðri.

Allir fara heim með einn koll og bekk í lok námskeiðs.

  • Kennsla: Ólafur Oddsson, verkefnisstjóri Lesið í skóginn og fyrrverandi fræðslufulltrúi Skógræktarinnar, og Ólafur G. E. Sæmundsen skógtæknir.
  • Tími: Fös. 25. feb. kl. 16-19 og lau. 26. feb. kl. 9-16 hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.
  • Verð: 52.900 kr. (Allur efniskostnaður, áhöld, kaffi og hádegismatur er innifalinn í verði auk þess sem þátttakendur taka með sér heim bæði koll og bekk úr skógarviði).
  • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.

UMSAGNIR NEMENDA Á FYRRI NÁMSKEIÐUM

 

„Það var farið vel í það sem talað var um í námskeiðslýsingu”

„Lærði að nota verkfæri sem ég hafði ekki notað áður og náði meiri færni með verkfæri sem ég hafði kynnst áður”

„Praktískt, fróðlegt, gott jafnvægi á fræðslu og verklegu. Kennarar skemmtilegir og
góðir.”

“Áhugavert og skemmtilegt, ásamt því að vera nytsamlegt.”